átaksbloggið
Klukkan
09.11.2006 12:33:00 / sexymama

Dagur 3

ég fékk mér réttan morgunmat, eða mádegismat, því ég vaknaði svo seint :Þ

Ætla mér að gera þetta, skráði mig í fjarnmám hjá danska. Held að það sé bara gott því ég borgaði svo mikið fyrir það, að ég á ekki eftir að geta slegið slöku við án þess að fá brjálaðan móral 8)

Þetta fjarnám er í 10 vikur, ég ætla að endurmeta stöðuna þá, hvort e´g held áfram í ddv eða hvort ég breyti um aðferð og fari t.d. á súkkulaðikúrinn, hef heyrt að hann sé mjög skemmtilegur :haha:

Get allavega fullvissað alla um að ískúrinn virkar ekki nema til fitunar.

nú ætla ég smá blogg rúnt og fara svo að hafa drengina mína tiil í pössun, 2/4 barnanna fara í dag, hin 2 á morgun, og þá við líka *hoppp*


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 12:33:01 / sexymama

ahmm

Merkilegt að bara eftir rúma 2 daga á danska líður mér strax mikið betur, ég er mun orkumeiri og hressari, og er alveg klár á að ég sé allavega 10 kílóum léttari.  

Þetta gengur enn vonum framar, ég að vísu átti svolítið bágt með mig í gærkveldi, ég eiginlega endaði á smá svindli, fékk mér popp :S 

Æ ég nenni ekki að rífa mig niður fyrir smá hliðarspor, þetta er erfitt í bili, ég reyni mitt besta og betra get ég ekki gert.

Ég hef strax breytt alveg rosalegu í matarvenjum, bara það að borða svona reglulega og alltaf hollt, þá er ég eiginlega að gera kraftaverk finnst mér. Ætla bara að finnast það áfram :Þ

Svo er það BOSTON BEIB'I! á föstudag. Ég ætla þar að halda mig við að borða reglulega og borða hollt, en nenni ekki alveg að flækjast með vigtina með mér útum allt, nóg að burðast með mjaltarvélina :Þ

Jæja, ég æltla að letast pínu yfir sjónvarpi, og fara svo að skúra og taka til!! Jahúú


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 17:23:41 / sexymama

Framhald

Ég fer eftir mataræði DDV, er bara nýbyrjuð og finnst þetta smá flókið, en ég geri ráð fyrir að ég komist uppá lag með það fljótlega .

Só far só gúd :)

Mig langar eiginlega ekki neitt í nammi, mér hefur tekist að halda því þannig að þegar ég finn fyrir svengd þá stekk ég á ávöxt áður en mér dettur e-ð annað i hug :D

Jámm, þannig gengur það, ég vona bara að mér haldi áfram að ganga svona vel, þá kannski verð ég búin að tapa af mér slatta næsta sumar :) Vá hvað það væri gaman, geta virkilega farið út í sólina í stuttermabol og stuttbuxum án þess að líða eins og strönduðum hval! Jahú!

Ég fann gamla mynd af mér, og OMG ég var voða sæt, ég er það ekki núna, eða allavega finnst mér það ekki.. Ætla að skella þessari gömlu mynd á ísskápinn, minna mig á hvað ég verð flott ef ég stend mig!


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 17:07:08 / sexymama

Átaksbyrjun

jæja.

ég ákvað að byrja með svona átakssíðu, það er örugglega rosalega gott að hafa smá aðhald.

Í dag þarf ég að losna við umþb 35 kóló 8|

Ég hef fitnað rosalega á meðgöngum, búin að ganga með 3 börn á 4 árum, og fitnaði í öll skiptin. Nú er kominn tími til að taka það af aftur, ég vil verða eins og ég á aðvera.


» 0 hafa sagt sína skoðun


Gamalt blogg